Fiskeldisblaðið

Fréttir

Útflutningsverðmæti eldisafurða hækkar um 137% milli ára

SFS hefur tekið saman greiningu á útflutningsverðmætum eldisafurða samkvæmt tölum sem Hagstofan birti s.l. föstudag:

„Útflutningsverðmæti eldisafurða nam 2.070 milljónum króna í apríl samkvæmt tölum sem Hagstofan birti á föstudaginn. Er því enn og aftur um met að ræða í útflutningsverðmæti eldisafurða, líkt og verið hefur þá mánuði sem liðnir eru af þessu ári. Í apríl í fyrra nam útflutningsverðmæti eldisafurða 872 milljónum króna, og er því um að ræða 137% aukningu í krónum talið á milli ára. Gengi krónunnar var ríflega 11% veikara í apríl síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra og er aukningin í erlendri mynt því minni fyrir vikið, eða sem nemur um 110%.

Minni aukning í tonnum talið
Alls voru flutt út 2.135 tonn af eldisafurðum í apríl samanborið við 1.086 tonn í sama mánuði í fyrra. Er aukningin í tonnum talið því 97% og þar með talsvert minni en í fjárhæðum, hvort sem er í krónum eða erlendri mynt. Meðal annars vegna þess að útflutningsverðmæti frjóvgaðra hrogna (lifandi eldislax, þar með talið seiði) var margfalt meira nú í apríl en í apríl í fyrra, um 152 milljónir króna á móti 260 þúsund krónum. Slíkur útflutningur telur vitaskuld ekki mikið í tonnum.

Ríflega 10% af verðmæti sjávarafurða
Á fyrstu fjórum mánuðum ársins er útflutningsverðmæti eldisafurða komið upp í 8,6 milljarða króna, sem er talsvert hærri fjárhæð en á öllu árinu 2015 og árin þar á undan. Er um að ræða 71% aukningu í krónum talið á milli ára, en á sama tímabili í fyrra var verðmæti eldisafurða 5,0 milljarðar króna. Er útflutningsverðmæti eldisins ríflega 10% af útflutningsverðmæti sjávarafurða á tímabilinu og hefur hlutfallið aldrei mælst hærra, eins og myndin hér fyrir neðan ber með sér.