Arnarlax er nýr bakhjarl Kokkalandsliðsins

Klúbbur matreiðslumeistara og Arnarlax undirrituðu samstarfssamning á Kolabrautinni í Hörpu við hátíðlega athöfn. Landsliðið og fagmenn þess munu nota hágæða afurðir úr laxeldi Arnarlax við æfingar og keppni. Íslenski laxinn hefur nú þegar skapað sér sterka ímynd á alþjóðlegum mörkuðum fyrir framúrskarandi gæði.

Kristian Matthíasson forstjóri Arnarlax og Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri Kokkalandsliðsins.

Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri Kokka­landsliðsins; „Það er skemmtilegt fyrir landsliðið að fá laxinn í liðið.  Hann hefur fjölbreytta notkunarmöguleika reyktur og grafinn, yfir í það að vera háklassa aðalréttur á matseðlum fínustu veitingahúsa. Vinsæll í sushirétti í því margbreytilega formi.  Við þekkjum afurðir Arnarlax vel og það er fyrsta flokks lax sem verður spennandi að vinna með.“

Kristian Matthíasson forstjóri Arnarlax: „Samstarf okkar við Klúbb matreiðslumeistara á Íslandi og Kokklandsliðið er spennandi verkefni og jafnframt viðurkenning á gæðum afurða okkar sem við erum mjög stolt af.“

Kokkalandsliðið keppir á heimsmeistaramóti í matreiðslu sem fram fer í Lúxemborg í nóvember. Liðið er skipað ungum fagmönnum sem taka þátt í því að þróa íslenskt eldhús og kynna íslenskt hráefni fyrir erlendum fagmönnum í greininni. Liðið er á loka­spretti í sín­um 18 mánaða und­ir­bún­ingi. Stuðning­ur ís­lenskra fyr­ir­tækja skipt­ir sköp­um fyr­ir Kokka­landsliðið og er því mikið ánægju­efni að til­kynna að Arnarlaxhef­ur gengið til liðs við liðið sem einn bak­hjarla þess.

Lax er einhver hollasti matur sem í völ er á og eru vinsældir hans stöðugt að aukast. Í laxinum er mikið af omega-3 fitusýrum, prótíni, vítamínum eins og D-vítamíni, B12- vítamíni, A-vítamíni, joði og andoxunarefnum.  Hann er ekki bara næringaríkur, hollur og góður, því laxinn er eitt umhverfisvænasta prótein sem ræktað er í heiminum.