Lax í rjómasósu með döðlum og sólþurrkuðum tómötum

Margir þekkja Evu Laufey sem hefur verið með marga skemmtilega matreiðsluþætti í sjónvarpi. En hún er líka
öflugur matarbloggari og á vef hennar evalaufeykjaran.is má finna margar girnilegar uppskriftir.

Hráefni
Lax í rjómasósu með döðlum og sólþurrkuðum tómötum
500 – 600 g lax, beinhreinsaður
olía til steikingar + smá smjörklípa
1 1/2 dl smátt skorinn blaðlaukur
10 döðlur, mjúkar og smátt skornar
10 sólþurrkaðir tómatar, smátt skornir
1/2 tsk. timían
salt og nýmalaður pipar, magn eftir smekk
2 – 3 dl rjómi.

Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C.
Hitið olíu á pönnu, skerið laxinn í jafn stóra bita og steikið á hvorri hlið í tvær mínútur. (byrjið á því að steikja laxinn á roðhliðinni)
Kryddið laxinn með timían, salti og pipar. Bætið vænni smjörklípu út á pönnuna rétt í lokin.
Setjið laxinn í eldfast mót og byrjið að undirbúa sósuna.
Skerið blaðlauk, döðlur og sólþurrkaða tómata afar smátt og steikið upp úr olíu í smá stund, hellið rjómanum saman við og kryddið með salti og pipar. Leyfið sósunni að malla svolítið og hellið henni yfir laxinn. Setjið fiskréttinn inn í ofn við 180°C í 10 mínútur.

Berið fiskinn fram með glænýjum kartöflum, nóg af smjöri og fersku salati!