Fiskeldisblaðið

Fréttir

Met í verðmæti norskra sjávarafurða

Fyrstu sex mánuði ársins 2019 var heildarútflutningur norskra sjávarafurða 1,3 milljónir tonna og útflutningsverðmætin meiri en nokkru sinni fyrr eða 51,2 milljarðar NOK (730 milljarðar ISK).Þrátt fyrir 13% samdrátt í magni frá sama tímabili ársins 2018 hafa verðmæti afurða hækkað um 7%, eða um 3,1 milljarða NOK (42,5 milljarða ISK). Útflutningur á laxi skapaði 68% af heildarútflutningstekjum norskra sjávarafurða.

Útflutningsverðmæti norskra laxaafurða var 34,6 milljarðar NOK (475 milljarða ISK) fyrstu sex mánuðum ársins en útflutningurinn á tímabilinu var 506.000 tonn. Þetta er 5% aukning mælt í magni en verðmæti afurða jókst um 6% eða 2,1 milljarð NOK (28,8 milljarða ISK). Pólland, Frakkland og Danmörk voru stærstu markaðir fyrir norskar laxafurðir á tímabilinu.

Ástæðan fyrir minna magni í tonnum frá sama tímabil í fyrra er aðallega vegna minni útflutnings á kolmunna og lítils loðnukvóta.

„Í útflutningstekjum er þetta nýtt met í verðmætum norskra sjávarafurða á sex mánaða tímabili. Útflutningur á laxi skapar tvo þriðju hluta verðmætisaukningarinnar á þessu hálfa ári og við erum líka að sjá ágætis verðmætaaukningu í skelfiski.

Eftirspurn eftir norskum sjávarafurðum hefur verið stöðugt en aðgengi að nýjum mörkuðum er að opnast. Þar að auki hefur verðmæti útflutnings aukist vegna veiku gengi norsku krónunar.  Samanlögð áhrif verðmætaaukningar á laxi og veiku gengi eru ástæður þess að útflutningstekjur sjávarafurða hafa aldrei verið meiri en fyrstu sex mánuði ársins 2019,“ segir Tom-Jørgen Gangsø, forstöðumaður hjá norska sjávarútvegsráðaneytinu á vef Norwegian Seafood Council.