Fiskeldisblaðið

Fréttir

Þjónustustöð fiskeldis

„Senn líður að lokum byggingu þjónustustöðvar fiskeldis hjá Egersund Ísland á Eskifirði. Stöðin samanstendur af þvottatromlu fyrir fiskeldispoka, fullkomnu affallshreinsikerfi, starfsmannaaðstöðu og litunarhúsi. Starfsemi þjónustunar hefur þegar vaxið fiskur um hrygg en samhliða þvotti og þjónustu á eldispokum hefur fyrirtækið einnig hafið þjónustu við tæknibúnað frá systurfélaginu AKVA group í Noregi.

Er það markmið félaganna tveggja að veita alhliða þjónustu við fiskeldi á Íslandi og hefur fyrsta skrefið þegar verið tekið,“ segir Benedikt Ernir Stefánsson fulltrúi Egersund á Íslandi í færslu sinni á Facebook í dag.