Ný hugmynd um úthafs sjókvíar

Mowi, stærsta laxeldisfyrirtæki í heimi hefur kynnt nýjar hugmyndir úthafs-sjókvía sem fyrirtækið hefur verið að þróa og hyggst gera tilraunir með í framtíðinni. Sjá nánar hér. Kvíarnar eru ekki til þess gerðar að leysa núverandi strand-sjókvíar af hólmi heldur er um að ræða hluta af mikilli grósku sem á sér stað í þróun á sjókvíum til úthafsræktunar enda stefna Norðmenn á að auka verulega laxaframleiðslu á næstu áratugum.  Verkefnið er enn á frumstigi og óvíst hvort eða hvenær það verður að veruleika.

Ræktun í úthafs-sjókvíum, skipum eða pöllum er ekki háð þeim leyfum sem gefin eru út til strandræktunar og eru því hrein viðbót á nýjum forsendum sem er gríðarlegt tækifæri fyrir norsku laxeldisfyrirtækin til að vaxa enn hraðar.  Þar af leiðandi er miklum fjármunum nú varið til hönnunar og þróunar úthafs-kvíum, pöllu og skipum til laxeldis. Búist er við að úthafslaxinn muni í framtíðinni hafa aðra markaðssérstöðu en laxinn sem ræktaður er í fjörðum Noregs.

Hugmynd Mowi er að þessi gerð úthafs-sjókvía verði hægt að staðsetja allt að 100 km frá landi og 5-50 metra undir yfirborði sjávar eftir því hvernig viðrar á hafi úti.  Hugmyndin gerir ráð fyrir að úthafs-sjókvíarnar verði sjálfstýrðar með fullkomnum búnaði til hreinsunar og affalls þannig að ekki verði þörf til að færa þær til á milli kynslóða eftir slátrun. Noregur er stærsti laxaframleiðandi í heimi og áætluð framleiðsla árið 2019 er tæplega 1,4 milljónir tonna.