Nýtt fóðurskip á Vestfjörðum

Fiskeldi Arctic Fish á Vestfjörðum á von á nýju fullkomnu fóðurskipi til landsins.  Skipið leggst að bryggju á Þingeyri mánudaginn 11. febrúar á  þar sem hægt verður að skoða skipið á milli klukkan 16 og 18. Þar verður heitt á könnunni og kleinur í boði.   Fóðurskipið hefur hlotið nafnið Mýrafell og verður staðsett á svæði Arctic Fish í Eyrarhlíð í Dýrafirði þar sem það kemur til með að þjónusta 12 sjókvíar.  Fóðurskipið hefur hlotið nafnið Mýrafell.

Í Facebookfærslu Arctic Fish segir:

Að Mýrafell sé frá Akva Group í Noregi smíðað í Tallinn og tekur 450 tonn af fóðri.
Með nýja fóðurskipinu verður Arctic Fish með nýjustu gerð af fóðurkerfi og byggist kerfið upp af þráðlausum myndavélum sem staðsettar eru á og ofan í kvíum. Myndavél ofan í svo hægt sé að fylgjast náið með fóðurgjöf og önnur ofan á sem yfirlitsmyndavél.

Mýrafell er með sjórnstöð, skrifstofurými, fyrsta flokks starfsmannaaðstöðu þar sem finna má klósett, sturtu, eldhús og verkstæði. Áfram gakk í rétta átt, uppbygging eldis og samfélags í sátt við umhverfið okkar. Fögnum saman þessum tímamótum kæru heimamenn.“

Fiskeldisblaðið óskar Arctic Fish og Vestfirðingum til hamingju með þetta glæsilega fóðurskip.