Fiskeldisblaðið

Uppskriftir

Lax í rjómasósu með döðlum og sólþurrkuðum tómötum

Eva Laufey

Margir þekkja Evu Laufey sem hefur verið með marga skemmtilega matreiðsluþætti í sjónvarpi. En hún er líka öflugur matarbloggari og á vef hennar evalaufeykjaran.is má finna margar girnilegar uppskriftir.

Eva Laufey
Lax í rjómasósu

Lax í rjómasósu 500 – 600 g lax, beinhreinsaður olía til steikingar + smá smjörklípa 1 1/2 dl smátt skorinn blaðlaukur 10 döðlur, mjúkar og smátt skornar 10 sólþurrkaðir tómatar, smátt skornir 1/2 tsk. timían salt og nýmalaður pipar, magn eftir smekk 2 – 3 dl rjómi. Aðferð: 1. Hitið ofninn í 180°C. 2. Hitið olíu á pönnu, skerið laxinn í jafn stóra bita og steikið á hvorri hlið í tvær mínútur. (byrjið á því að steikja laxinn á roðhliðinni) 3. Kryddið laxinn með timían, salti og pipar. Bætið vænni smjörklípu út á pönnuna rétt í lokin. 4. Setjið laxinn í eldfast mót og byrjið að undirbúa sósuna. 5. Skerið blaðlauk, döðlur og sólþurrkaða tómata afar smátt og steikið upp úr olíu í smá stund, hellið rjómanum saman við og kryddið með salti og pipar. Leyfið sósunni að malla svolítið og hellið henni yfir laxinn. Setjið fiskréttinn inn í ofn við 180°C í 10 mínútur. Berið fiskinn fram með glænýjum kartöflum, nóg af smjöri og fersku salati!