Fiskeldisblaðið

Umhverfismál

Vilja auka laxeldi í Dýrafirði

Sigurður Pétursson

Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar tekur jákvætt í áform Arctic Sea Farm, um aukna framleiðslu á laxfiski í Dýrafirði úr 4200 tonnum í 10.000 tonn á ári.

Þetta kemur fram í bókun nefndarinnar frá því í nóvember. Skipulagsstofnun fór fram á álit Ísafjarðarbæjar vegna áforma Arctic Sea Farm og var álitinu skilað þann 20. nóvember s.l.

Í fyrrgreindri bókun kemur m.a. fram að samkvæmt mati Hafrannsóknarstofnunnar er Dýrafjörður talinn þola eldi á allt að 10 þúsund tonnum og er súrefnisbúskapur fjarðarins jafnvel talinn þola allt að 40% meira eldi en það. Áhrif uppsöfnunar næringarefna frá eldinu eru talin hafa mjög takmörkuð áhrif á botndýralíf á svæðinu, en með umhverfisvöktun er ætlun framkvæmdaraðila að fylgjast með mögulegum áhrifum á það og verða kvíaþyrpingar færðar til ef talið verður tilefni til.

Ennfremur segir að í Dýrafirði og nágrenni fjarðarins eru engar laxveiðiár og er því samkvæmt áhættumati Hafró engin áhætta fyrir villta laxfiskstofna af hugsanlegum strokufiski frá eldinu. Er það því mat skipulags- og mannvirkjanefndar að stækkunaráform fyrirtækisins séu rökrétt í framhaldi af ágætum árangri síðustu ára og áform um viðbrögð þess eðlis að neikvæð umhverfisáhrif verða í algeru lágmarki,“ segir í bókuninni.

„Aðkoma skipulags- og mannvirkjanefndar Ísafjarðarbæjar og álit þetta er byggt á þeirri staðreynd að bæjarfélagið og íbúar þess hafa hagsmuni af því að nýting lands og nærliggjandi sjávar, sé í sátt við umhverfi og íbúa. Jafnframt er mjög mikilvægt að nærliggjandi auðlindir séu nýttar með einhverjum hætti, til hagsbóta fyrir samfélagið.“